Framfærslugrunnur fjárhags- aðstoðar á Akureyri hækkar

Félagsmálaráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til hækkun á framfærslugrunni fjárhagsaðstoðar í samræmi við breytingar á vísitölu síðustu tveggja ára, að frádreginni hækkun síðasta árs. Grunnupphæð hækkar þá úr kr. 125.540 í kr. 131.617 á mánuði eða um 4,8%. Beðið verði með frekari breytingar þar til séð verði hvernig málin þróast á landsvísu. Málinu var vísað til bæjarráðs.  

Á fundi félagsmálaráðs var lagt fram bréf frá Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra þar sem þeim tilmælum er beint til sveitarstjórna að þær tryggi að einstaklingar hafi að lágmarki sambærilega fjárhæð og atvinnuleysisbætur til framfærslu á mánuði. Atvinnuleysisbætur eru nú kr. 149.523 á mánuði.

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram og kynnti minnisblað þar sem farið er yfir vinnulag og breytingar varðandi fjárhæðir í fjárhagsaðstoð bæjarins og sveitarfélaga almennt. Einnig var kynnt umræða sem nú á sér stað á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nýjast