Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar mætast öðru sinni í kvöld í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí Skautahöllinni í Laugardal kl. 20:15. SR leiðir einvígið 1:0 eftir 6:4 sigur í fyrsta leik liðanna á Akureyri sl. sunnudag. SA Víkingar þurfa því á sigri að halda í kvöld en SR getur komið sér í lykilstöðu, nái þeir sigri á heimavelli. Rúnar Freyr Rúnarsson, hinn þaulreyndi leikmaður SA, er hvergi smeykur fyrir leikinn í kvöld.
„Ég væri kannski smeykur ef við hefðum verið að sýna góðan leik á sunnudaginn en svo var ekki. Við eigum mikið inni. Við mættum aldrei til leiks í þeim leik en það er nóg eftir af þessu og við bætum úr því í kvöld,” segir Rúnar.
„Við höfum fulla trú á okkar liði og við förum alveg óhræddir í leikinn í kvöld. Við lentum líka 1:0 undir gegn Birninum í fyrra en unnum samt titilinn. Við erum orðnir svo reyndir í þessu og við vitum að þetta er ekkert einn leikur heldur fimm,” segir Rúnar Freyr Rúnarsson.