Fólk hefur dregið úr útgjöldum vegna útfara

Kirkjugarðar Akureyrar.
Kirkjugarðar Akureyrar.

Smári Sigurðsson forstöðumaður Kirkjugarða Akureyrar segir  greinilegt að fólk hafi dregið úr útgjöldum varðandi jarðarfarir aðstandenda sinna.  „Fólk sýnir nú orðið meiri skynsemi og það er ljóst að fólk eyðir minna fé en t.d. á árunum fyrir hrun,“ segir Smári. Allir vilji standa vel að útför sinna nánustu, en hægt og bítandi hefur fólk dregið úr útgjöldum, það kaupir minna af alls kyns aukahlutum en áður var og horfir meira í peninginn. Tónilistaratriði við útfarir eru hófstilltari og nú heyrir nánast sögunni til að fluttir séu heilu kórarnir sunnan úr Reykjavík líkt og dæmi voru um áður fyrr.

Þá nefnir Smári að starfsmenn Kirkjugarða Akureyrar hafi einnig tekið eftir því að á árunum 2004 til 2007 hafi „aukahlutum“ á leiði fjölgað mjög, sem dæmi má nefna engla af ýmsu tagi, ljósker og fleira því um líkt.  Nú hafi verulega dregið úr slíkum hlutum sem bætt er við á leiði látins fólks og kemur það sér, að sögn forstöðumanns, vel fyrir starfsmenn, en á timabili voru slíkir efnislegir aukahlutir svo fyrirferðarmiklir víða að þeir töfðu umhirðu leiðanna. „Þetta hefur snarminnkað nú síðustu misseri, ætli fólk hafi ekki áttað sig á því eftir hrun að efnislegir hlutir af þessu tagi skipta litlu sem engu máli,“ segir Smári.

 

Nýjast