Flugvél með tveimur mönnum lenti á Melgerðismelum

Lítil flugvél með tveimur mönnum um borð lenti heilu og höldnu á Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit nú fyrir stundu en Slökkviliði Akureyrar hafði skömmu áður borist tilkynning um að vélin væri vélarlaus og að reykur væri um borð. Slökkviliðið var með mikinn viðbúnað en ekki fengust frekari upplýsingar að svo stöddu.

Nýjast