Stjórn Akureyrarstofu telur uppbyggingu og tilvist Flugsafns Íslands mjög jákvæða og mikilvæga fyrir ferðaþjónustu og menningarlíf í bænum, en ítrekar þá skoðun sína að ríkisvaldið eigi að vera megin bakhjarl safns sem skráir flugsögu Íslands sem heild. Stjórnin ítrekar fyrri ákvörðun um að halda áfram árlegum stuðningi við safnið með sama hætti og verið hefur.
Ennfremur kemur fram í bókun frá fundi stjórnar Akureyrarstofu að misjafnt er með hvaða hætti Akureyrarbær kemur að stuðningi við rekstur safna á Akureyri, enda er hann í sumum tilfellum eigandi eða stofnaðili en í öðrum tilfellum ótengdur viðkomandi safni. Akureyrarbær lagði Flugsafninu til húsnæðisstyrk með 45,5 mkr. framlagi til nýbyggingar safnsins sem kemur í stað árlegs húnæðisstyrks sem sum söfn í bænum njóta. Auk þess hefur Akureyrarbær stutt við rekstur safnsins með lægri árlegum fjárhæðum og er reiðubúinn til þess áfram.