Erlingur Kristjánsson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar mætti á fund félagsmálaráðs og kynnti starfsemina. Fjölsmiðja er atvinnutengt úrræði fyrir ungt fólk á krossgötum, sem hefur flosnað upp úr námi eða vinnu. Í Fjölsmiðjunni er ungmennum hjálpað við að finna sér stað í lífinu og byggja sig upp fyrir framtíðina. Samkvæmt hugmyndinni er verklag eða vinnugeta fólksins virkjað svo unga fólkið öðlist reynslu og verði hæfara til að finna sér starfsgrein eða að fara í frekara nám. Þessir einstaklingar, sem eru á aldrinum 16-24 ára, eru atvinnulausir vegna reynsluleysis, menntunarskorts, félagslegra og/eða andlegra vandamála.