Fjallað um veiðimál fyrir botni Eyjafjarðar á SVAK-kvöldi

Mega smábátar veiða bleikju á Pollinum? Má veiða í ræsinu við Varðgjánna?  Hver má veiða í net í firðinum?  Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, verður með erindi á SVAK-kvöldi að Hólabraut í kvöld kl. 20.00, mánudaginn18. apríl. Þar fjallar Árni um veiðimál fyrir botni Eyjafjarðar og þætti sem lúta að nýtingarstjórnun í og við ósa Eyjafjarðarár.  

Í hádeginu í dag, eða kl. 12.10 verður Árni með málstofu í Háskólanum á Akureyri. Þar fjallar hann um lagalegt umhverfi lax- og silungsveiðimála og meginstoðir þess ástands sem við búum við.  Árni Ísaksson útskrifaðist sem fiskifræðingur frá Washingtonháskóla í Seattle árið 1970 og hefur síðan starfað við lax- og silungsveiðimál. Hann starfar nú sem forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu eftir sameiningu á stjórnsýsluþætti sjávar- og ferskvatnsfiska árið 2008.

Nýjast