FH tryggði sér rétt í þessu deildarbikarinn í handbolta karla eftir þriggja marka sigur gegn Akureyri í úrslitum, 29:26, en
leikið var í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Akureyri hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 16:13, en FH reyndist sterkari
aðilinn í lokamínútunum og kom í veg fyrir að Akureyri Handboltafélag myndi vinna sinn fyrsta titil.Heimir Örn Árnason og Bjarni Fritzson voru markahæstir í liði Akureyrar með 7 mörk hvor og fyrir FH voru þeir Ásbjörn Friðriksson og
Baldvin Þorsteinssson einnig með 7 mörk hvor. Daníel Andrésson átti fínan leik milli stanganna hjá FH með 19 skot varin en hjá Akureyri
varði Sveinbjörn Pétursson 9 skot og Stefán Guðnason 5 skot.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá að gögn Samgöngustofu sýna skýra fækkun slysa frá því göngin voru opnuð. Eitt af meginmarkmiðum Vaðlaheiðarganga var að bæta umferðaröryggi og þessi þróun bendir til þess að þau hafi skilað þeim árangri,“ segir Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga.
Hollvinir heimsóttu lyflækningadeild í dag og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap.