Í ljósi þess að þjóðvegur eitt verður í sundur um sinn sunnan Mýrdalsjökuls má reikna með aukinni umferð um
hálendið og þá sérstaklega Fjallabaksleið nyrðri og jafnvel Sprengisandsleið. Í ljósi þess vill Slysavarnafélagið
Landsbjörg beina því til ferðamanna að kynna sér alltaf vel aðstæður áður en lagt er í hann t.d. á
www.safetravel.is,
www.vegagerdin.is og
www.vedur.is.
Sem fyrr eru björgunarsveitir félagsins til taks í Hálendisvaktinni og eru staðsettar að Fjallabaki, á Sprengisandi, á Kjalvegi og norðan
Vatnajökuls. Þurfi ferðalangar á aðstoð að halda skal hafa samband við Neyðarlínu í númerinu 112 sem kemur hjálparbeiðnum
áleiðis á rétta staði, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.