Á síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu var lögð fram formlega áfangaskýrsla verkefnisstjórnar um mótun atvinnustefnu, þar sem gerð er grein fyrir þeirri greiningar- og tengslavinnu sem fram hefur farið sl. ár. Í tillögum verkefnisstjórnar kemur fram að nauðsynlegt sé að fara út í víðtækari stefnumótun þar sem kallaðir verði til helstu hagsmunaaðilar í atvinnulífinu með svipuðum hætti og gert var í vinnunni 1999 og fjallað er nánar um skýrslunni. Skilgreindir verði sameiginlegir hagsmunir og kortlagðar leiðir til að ná þeim fram. Verkefnum verði forgangsraðað eftir því hvað hagsmunaaðilar eru tilbúnir að leggja af mörkum til þeirra. Tryggt verði að verkefni séu eign tiltekinna hagsmunaaðila sem vinna þeim framgang.
Þá er lagt til að áfram verði til sérstakur hópur sem hafi atvinnumál sem megin viðfangsefni, hlutverk hópsins sé að vera verkefnastjóra atvinnumála innan handar og leiða saman hagsmunaaðila í atvinnulífinu. Jafnframt kemur fram í tillögunum að verkefnastjórn atvinnumála sér helstu hlutverk AFE vera þau að sinna stærri fjárfestingarverkefnum í Eyjafirði, koma á samstarfi milli svæða auk þess að efla samstarf sitt við Akureyrarstofu og Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi þegar það á við. Akureyrarstofa og AFE fari þegar í aðgerðir til að auka aðstoð við nýsköpun og frumkvöðlastarf.
Stjórn Akureyrarstofu telur þessi greiningarvinna verkefnisstjórnar sé mikilvægt veganesti fyrir framhaldið. Jafnframt samþykkti stjórnin að áfram verði til verkefnisstjórn sem haldi utan um ítarlegri stefnumótun og að undirbúningur hennar hefjist nú þegar. Þá óskar stjórn Akureyrarstofu eftir því að fráfarandi verkefnisstjórn skipi tvo fulltrúa úr sínum hópi og að leitað verði til Háskólans á Akureyri um að skipa einn fulltrúa í nýja verkefnisstjórn sem muni annast undirbúning næsta fasa í vinnunni.