Í dag mætast Akureyri og FH í þriðja leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik og hefst leikurinn kl. 16:00
í Höllinni á Akureyri. FH er 2:0 yfir í leikjum talið og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í dag. Akureyringar eru komnir upp
að vegg og ljóst að þeir þurfa að vinna þrjá leiki í röð, ætli þeir sér að verða Íslandsmeistarar. FH
hefur unnið fyrstu tvo leikin naumlega, þann fyrri 22:21 á Akureyri og svo 28:26 í Kaplakrika. Báðir hafa leikirnir spilast þannig að sigurinn hefði
getað dottið hvoru megin sem var.
Það er því ekki neinu öðru að búast en að leikurinn í dag bjóði upp á svipaða spennu og dramatík og
leikirnir á undan.
Takist Akureyri að landa sigri í dag mætast liðin í fjórða sinn í Kaplakrika á miðvikudaginn kemur. Jafni norðanmenn
einvígið mætast liðin í hreinum úrslitaleik á föstudaginn kemur í Höllinni á Akureyri.