Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur samþykkt tillögu fyrir sitt leyti, um að Eyrún Halla Skúladóttir verði ráðin skólastjóri
Glerárskóla frá og með 1. ágúst nk. Alls voru fjórir umsækjendur um stöðuna og voru þeir allir boðaðir í
viðtal.
Fræðslustjóri og skólanefnd ásamt Trausta Þorsteinssyni lektor við HA sáu um viðtölin og vann Trausti svo úr þeim. Eftir
að hafa farið yfir niðurstöður viðtala, innsend gögn og ummæli meðmælenda, var gerð tillaga um að Eyrún Halla verði
ráðin.
Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap.
Menningarhúsið Berg á Dalvík er vettvangur stórtónleika annað kvöld þegar stór og öflugur hópur listafólks úr heimabyggð sameinar krafta sína og heldur styrktartónleika fyrir Úlfar Baldvin, 6 ára ofurhetju og fjölskyldu hans, en Úlfar hefur nýlega verið greindur með krabbamein.
Allir vita hver skilgreining á óbeinum reykingum er og nú er ég kominn þangað, ég lendi í litlu mæli í því að stunda óbeinar reykingar. Já, takk ég er hættur að reykja.
Hopp Akureyri hefur spurst fyrir um það hvort áhugi sé fyrir hendi til að þjónusta þeirra nái í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð Eyjafjarðarsveitar hefur tekið jákvætt í hugmyndir að aukinni fjölbreytni sem felst í fararskjótum Hopp milli Hrafnagilshverfis og Akureyrarbæjar og beinir erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framkvæmdaráð leggur áherslu á að ef af þjónustunni verður þá sé rík áhersla lögð á að Hopp hjól séu eingöngu skilin eftir á afmörkuðum stöðum og fjarlægð fljótt þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.
Hrafnagilsskóla hefur borist vegleg gjöf frá fyrirtækinu G V Gröfum ehf. en um er að ræða vandað þráðlaust hljóðnemakerfi og hleðslustöð. Þessi nýi búnaður kemur til með að stórbæta öll hljóðgæði á samverustundum skólans.