Evrópustofa, upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi, efnir til opins fundar um Evrópumál á Akureyri, miðvikudaginn 29. febrúar, kl. 17-18 á Hótel Kea. Á fundinum verður fjallað um stöðu mála innan Evrópusambandsins og gang aðildarviðræðna sambandsins við Ísland. Jafnframt verður starfsemi og tilgangur Evrópustofu, upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi kynnt. Fundurinn er liður í því markmiði Evrópustofu að stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi ESB. ,,Í því skyni ætlum við standa fyrir röð kynningar- og umræðufunda víðsvegar um landið á komandi vikum, enda afar mikilvægt að fólk taki þátt í Evrópuumræðunni óháð búsetu, segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar nýlega kom fram í máli Eiríks Björns Björgvinssonar bæjarstjóra að fulltrúar Evrópustofu hefðu komið norður í heimsókn og hitt fulltrúa bæjarrins. Þar hefði m.a. komið fram að til standi að setja upp Evrópustofu á Akureyri.