Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri á Akureyri hefur samþykkt erindi frá Becromal Properties, þar sem sótt var um leyfi til að
stækka núverandi verksmiðjubyggingu í Krossanesi um 352,4 fermetra í N-A átt. Jafnframt samþykkti skipulagsstjóri erindi frá Becromal,
þar sem sótt var um leyfi fyrir breytingum á skrifstofuhluta afþynnuverksmiðjunnar.