Frida Petersen, færeyski markvörðurinn í liði KA/Þórs, hefur vakið mikla athygli með liðinu í vetur í N1-deild kvenna í handknattleik. Hún hefur átt hvern stórleikinn á eftir öðrum og oft á tíðum haldið liðinu á floti á slæmum köflum með góðri markvörslu. Frida varði sautján skot, þar af eitt víti, í sigri KA/Þórs gegn HK í síðasta leik á heimavelli og var besti maður vallarins. Ég er nokkuð sátt með mína frammistöðu í vetur. Það er oft erfitt að spila fyrir lið sem þú þekkir ekki mikið en mér finnst ég hafa fallið vel inn í hópinn. Það er hugsað vel um mig og mér líkar mjög vel hérna, segir Frida. Hún segir kvennahandboltann hér á landi skemmtilegan en átti hins vegar von á því að deildin væri sterkari. Liðin sem eru við toppinn eru mjög sterk og vel spilandi en það er svakalegur getumunur á milli liða í deildinni. Gæðin eru ekki eins mikil hjá liðunum í neðri hlutanum og það má segja að deildin skiptist upp í þrjá hópa, segir hún. Frida, sem er 28 ára, hefur spilað handbolta síðan hún var tólf ára og spilaði í Færeyjum áður en hún kom til Íslands síðastliðið sumar. Hún er samningsbundin hjá KA/Þór til 1. maí í vor og spáir lítið í framhaldið. Það getur vel verið að ég verði áfram en ég er ekkert farin að hugsa um það. Ég einbeiti mér fyrst og fremst að því að spila vel fyrir KA/Þór og hjálpa liðinu að ná sínum markmiðum, segir hún.
Langþráður sigur
KA/Þór vann sinn annan leik á tímabilinu er liðið lagði HK afar óvænt að velli, 23-22, í KA-heimilinu sl. laugardag. Fyrir leikinn munaði tíu stigum á liðunum en HK er í þriðja sæti deildarinnar. Sigurinn var langþráður þar sem norðanliðið hafði ekki unnið leik í deildinni síðan 15. október sl., er liðið lagði FH að velli, 24-22, á heimavelli. Þetta var svakalega sætur sigur. Sérstaklega í ljósi þess að við vorum aðeins búnar að vinna einn leik og HK að berjast á toppnum. Við spiluðum kannski ekkert alltof vel í leiknum en við börðumst fyrir þessu. Kolbrún Gígja Einarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir KA/Þór í leiknum og Ásdís Sigurðardóttir kom næst með sex mörk. Hjá HK var Brynja Magnúsdóttir markahæst með sex mörk.
Botnslagur í Kaplakrika
KA/Þór sækir FH heim í dag í botnslag kl. 16:00. Tvö stig skilja liðin að, FH situr í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig en KA/Þór hefur fjögur stig sæti ofar. Við ætlum okkur sigur þar og sjálfstraustið ætti að vera í lagi eftir sigurinn í síðasta leik. Við verðum samt að passa að fara ekki framúr okkur sjálfum þrátt fyrir hafa unnið leik og verðum að mæta til leiks af fullum krafti í dag, segir Frida.