Í lok júnímánaðar sl. voru 491 á atvinnuleysiskrá á Norðurlandi eystra, 195 karlar og 296 konur. Alls fækkaði um 255 á atvinnuleysisskrá miðað við sama mánuð í fyrra. Á Akureyri voru 334 á atvinnuleysisskrá í lok síðasta mánaðar, 130 karlar og 204 konur. Atvinnulausum á Akureyri fækkaði um 80 frá mánuðinum á undan og um 193 frá sama mánuði í fyrra. Í Eyjafjarðarsveit voru 14 á atvinnuleysisskrá í lok síðasta mánaðar og fækkaði um 3 frá júní í fyrra. Engar breytingar hafa orðið í Grýtubakkahreppi á milli ára en þar eru 3 á atvinnuleysisskrá. Í Hörgársveit voru 9 manns á atvinnleysskrá í lok júní og fækkaði um 10 á skrá, frá sama mánuði í fyrra. Í Svalbarðsstrandarhreppi voru 3 á skrá og fækkaði um einn á milli ára. Í Dalvíkurbyggð voru 24 á atvinnuleysisskrá í lok júní sl., sem sami fjöldi og fyrir ári. Í Þingeyjarsveit voru 14 á atvinnuleysisskrá og fækkaði um 6 frá lok júní í fyrra, samkvæmt yfirliti frá Vinnumálastofnun.
Skráð atvinnuleysi í júní 2012 var 4,8% en að meðaltali voru 8.704 atvinnulausir í júní og fækkaði atvinnulausum um 1.122 að meðaltali frá maí eða um 0,8 prósentustig. Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 838 að meðaltali og konum um 284. Atvinnulausum fækkaði um 592 á höfuðborgarsvæðinu en um 530 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 5,5% á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 6,3% í maí. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 3,5% og minnkaði úr 4,5% í maí. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum 7,5% og minnkaði úr 9,4% í maí. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra 1,2%. Atvinnuleysið var 4,3% meðal karla og 5,3% meðal kvenna.
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar
Alls voru 8.817 manns atvinnulausir í lok júní. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 7.902. Fækkun atvinnulausra í lok júnímánaðar frá lokum maí nam 1.037 en 723 færri karlar voru á skrá og 314 færri konur en í maílok. Á landsbyggðinni fækkaði um 450 og um 587 á höfuðborgarsvæðinu.
Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 5.504 og hefur fækkað um 752 frá lokum maí og eru um 62% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í júní. Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár var 3.521 í júnílok og fækkaði um 441 frá lokum maí.
Alls voru 1.265 á aldrinum 16-24 ára atvinnulausir í lok júní eða um 14% allra atvinnulausra. Í lok maí voru 1.544 á þessum aldri atvinnulausir og hefur þeim fækkað um 279 milli mánaða. Í lok júní 2011 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 2.032 og fækkar því um 767 milli ára í þessum aldurshópi.
Útlendingar á atvinnuleysisskrá
Alls voru 1.587 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok júní, þar af 902 Pólverjar eða um 57% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Í maílok s.l. var 1.731 erlendur ríkisborgari á atvinnuleysisskrá og fækkar því um 144 erlenda ríkisborgara á atvinnuleysisskrá. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 235.
Laus störf
Alls voru 302 laus störf í almennri vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í lok júní, flest fyrir ósérhæft starfsfólk eða 102 og 74 störf fyrir þjónustu- sölu og afgreiðslufólk. Auk lausra starfa hjá Vinnumálastofnun voru 53 störf laus á Starfatorgi þar af 41 sérfræðistarf sem ekki er sérstaklega miðlað af Vinnumálastofnun. Alls voru 53 ráðningar í störf í almennri vinnumiðlun í júní og 462 ráðningar í júní vegna átaksins Vinnandi vegur. Heildarfjöldi ráðninga vegna átaksins Vinnandi vegur á tímabilinu mars til júní var 1.384.
Hlutastörf
Samtals voru 697 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok júní í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í júní. Þetta eru um 7,9% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok júní.