Eldur í bát í Hrísey

Eldur kviknaði um borð í bát í Hrísey í morgun en tilkynning um eldinn barst Slökkviliðinu í Hrísey um tíuleytið í morgun. Slökkvistarf gekk vel og er búið að ráða niðurlögum eldsins. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Slökkviliðs Akureyrar í Hrísey eru töluverðar reyk-og vatnsskemmdir í bátnum, Guðrúnu EA 58. Talið er að eldurinn hafi komið út frá rafmagnsmiðstöð í bátnum, sem var mannlaus.

Nýjast