16. september, 2011 - 13:17
Ekið var á 11 ára stúlku á Akureyri um 12 leytið í dag er hún var á gangi yfir gatnamót við Glerárgötu. Að
sögn lögreglu eru málsatvik óljós en málið er í rannsókn. Stúlkan var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið
á Akureyri en hún mun ekki vera alvarlega slösuð.