Einni deild á Hlíð lokað

Ákveðið hefur verið að loka einni deild dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, til að mæta niðurskurði á fjálögum ríkisins 2011. Þetta var ákveðið á fundi félagsmálaráðs í vikunni. Fram kemur í bréfi frá Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar til aðstandenda, að ákveðið hafi verið að loka Lerkihlíð.  

Íbúum þeirrar deildar verður boðin önnur pláss í Hlíð sem losna og starfsfólki verður boðin önnur sambærileg störf á ÖA - engum verður sagt upp. Brit segir að eftir mikið þref, tölvupósta, fundarhöld og símtöl hafi verið dregið úr niðurskurði um 3 hjúkrunarrými frá upphaflegu fjárlögunum. Fækka þurfi um 7 rými en ekki 10 eins og upphaflega stóð til. Í vikunni var fundað með starfsfólki í Birki - og Lerkihlíð og með íbúum Lerkihlíðar og aðstandendum og farið yfir stöðuna. Brit segir að þetta verði erfitt ekki síst fyrir íbúana sem þurfa að flytja, einnig fyrri starfsfólkið og gagnvart þjónustunni úti i bæ.

Nýjast