Einangrunarverkefni í Grímsey

Íbúar í Grímsey hafa fengið styrk til að einangra þökin á húsum sínum.
Íbúar í Grímsey hafa fengið styrk til að einangra þökin á húsum sínum.

Á undanförnum árum hefur ríkissjóður niðurgreitt húshitun í Grímsey en þar eru öll hús kynt með olíu. Í upphafi miðuðust niðurgreiðslurnar við rúmmál hvers húss og ákveðna nýtingu olíuhitunarkerfisins. Orkustofnun hefur safnað upplýsingum um olíunotkun eyjaskeggja til samanburðar við þá reiknuðu notkun sem stuðst hefur verið við. Sú upplýsingasöfnun skilaði sér í því að um síðustu áramót var tekinn sú ákvörðun að hækka nýtingarkröfu tækjanna til jafns við raunverulega notkun hvers og eins íbúa. Á ársgrundvelli þýðir þetta um 2,7 milljóna króna lækkun á niðurgreiðslum til íbúa í Grímsey. Til að minnka olíunotkun íbúa ennfrekar var ákveðið að styrkja þá um sem nemur kostnaði hvers og eins við að láta einangra þökin á húsum sínum. Allir notendur með niðurgreiðslu þáðu það boð að undanskildum þremur þar sem blástur var ekki mögulegur.

Á sama tíma er Orkusetur með styrktarátak í gangi sem gengur út á glerskipti í öllum húsum í eyjunni, sem njóta niðurgreiðslu á húshitun, og eru langflestir með í því líka. Margir ætla ekki bara að skipta um gler heldur alla glugga og og jafnvel hurðir. Þessi tvö verkefni eiga eftir að minnka olíunotkun íbúa enn frekar og gerir Orkustofnun ráð fyrir að með þessum tveimur aðgerðum verði hægt að lækka kostnað notenda sem og ríkissjóð um allt að 25% til viðbótar þeim sparnaði sem náðst hefur með leiðréttingu til raunnotkunar. Kostnaðurinn við þessar aðgerðir er um 12,5 milljónir króna, sem skiptist þannig að 7,5 milljónir fara í einangrun á þökum og 5 milljónir til glerskipta.

 

Nýjast