Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb Akureyrar) sýna kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof. Í kvöld, 22. febrúar kl. 20 verður kvikmyndin Superclásico (Erkifjendur) sýnd en þessi eldfjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna.
Vínbúðareigandinn Christian er afar óhress með yfirvofandi brúðkaup fyrrverandi konu sinnar Önnu og hins heimsfræga og alræmda knattspyrnukappa Juan Diaz. Eftir að hafa fundið kjarkinn á botni eðalvínflösku ákveður Christian að halda til Argentínu, stöðva brúðkaupið og vinna Önnu sína aftur. Með aðalhlutverk fara; Anders W. Berthelsen, Paprika Steen, Jamie Morton og Sebastian Estevanez. Leikstjóri er Ole Christan Madsen.