23. október, 2012 - 14:32
Undirbúningur fyrir komandi skíðavertíð stendur nú sem hæst á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Búið er að koma öllum 10 snjóbyssunum fyrir á sínum stað í brekkunum og beðið átekta eftir meiri kuldatíð. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, segir að allra helst þurfi að vera um 5 gráðu frost í 5-6 daga áður en skynsamlegt sé að hefja snjóframleiðslu, því kaldara því betra.
Helst þarf að vera komið gott frost í jörðu til þess að hægt sé að framleiða gott undirlag fyrir skíðasnjó vetrarins. Við höfum gefið það út opinberlega og á heimasíðunni okkar að formleg opnun á skíðasvæðinu verði 1. desember eða eftir 39 daga en að sjálfsögðu opnum við miklu fyrr ef kólnar verulega og allt fer á kaf í snjó. Mér líst til að mynda nokkuð vel á veðurspána fyrir næstu daga, sagði Guðmundur Karl í stuttu samtali við Akureyri.is.