Norðlenska sundkonan Bryndís Rún Hansen sigraði í 50 m flugsundi í dag á Íslandsmeistaramótinu í 50 laug sem fram fer þessa dagana í Laugardalslauginni.
Bryndís synti á 27,66 sekúndum en hún keppir fyrir lið sitt Bergen í Noregi. Í öðru sæti varð Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og þriðja Erla Dögg Haraldsdóttir.