Bruggsmiðjan stækkar

Forsvarsmenn Bruggsmiðjunnar hafa ákveðið að stækka brugghús fyrirtækisins á Árskógssandi um þriðjung. Fyrstu skóflustungu að viðbyggingunni tók Agnes Sigurðardóttir framkvæmdastjóri þann 23. mars. Samið var við viðskiptabanka Bruggsmiðjunnar sem er Byr á Akureyri um fjármögnun á framkvæmdunum.  

Bruggsmiðjan hóf starfsemi 2006 og hefur sala fyrirtækisins vaxið stöðugt frá fyrsta degi og er nú svo komið að verksmiðjan, sem var reist í upphafi, annar ekki eftirspurn. Því var ákveðið að ráðast í að byggja við húsnæðið og fjölga tönkum.  Upphaflega var gert ráð fyrir að framleiðslan yrði um 170 þúsund lítrar á ári en framleiðsla síðasta árs var um 400 þúsund lítrar og náðist ekki að anna eftirspurn. Vörumerkin eru 10 að árstíðabjórunum meðtöldum.

Til þessa hefur Kaldi einungis fengist á flöskum en verður hér eftir einnig fáanlegur á kútum fyrir veitingahús. Agnes Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar og þakkar hún velgengnina því, að varan Kaldi þykir afar góð og hefur salan gengið vel allt frá upphafi.   Bruggmeistari Bruggsmiðjunnar, David Masa er enginn aukvisi en hann er bruggmeistari í fjórða ættlið frá Tékklandi. Hráefnið kemur einnig að mestu frá Tékklandi, utan auðvitað íslenska lindarvatnsins sem kemur úr Sólarfjalli við utanverðan Eyjafjörð.

"Byr á Akureyri hefur frá upphafi verið viðskiptabanki Bruggsmiðjunnar og hefur fylgt fyrirtækinu eftir í vextinum.  Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með uppgangi Bruggsmiðjunnar á erfiðum tímum í atvinnulífinu.  Við erum stolt af samstarfinu og sannfærð um að stækkunin sé  rétt skref hjá Agnesi og Óla," segir Örn Arnar Óskarsson, útibússtjóri Byrs á Akureyri.

„Það höfðu ekki allir trú á okkur í upphafi en Byr á Akureyri ákvað að vinna með okkur og fyrir það erum við þakklát" segir Agnes.

Nýjast