Verkefnisstjórn innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hefur undirritað samning við brúðuleikarana Hallveigu Thorlacius og Helgu Arnalds um brúðuleiksýningu í 2. bekk allra grunnskóla á Íslandi. Vitundarvakningin er hluti af skuldbindingum íslenskra stjórnvalda í samræmi við sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri misneytingu gegn börnum. Sýningunni, Krakkarnir í hverfinu, er ætlað er að auðvelda börnum að segja frá kynferðislegu ofbeldi sem þau verða fyrir. Boðskapurinn er: Þú færð hjálp ef þú segir frá. Hallveig og Helga fara á vegum vitundarvakningarinnar með brúðurnar í kennslustofur til allra barna sem eru í 2. bekk grunnskóla. Farið verður í skólana nú á vordögum og haldið áfram næsta vetur.