Tilkynnt var um innbrot í bílasölu á Akureyri um þrjú leytið í nótt og þaðan var stolið Porsche Cayenne bifreið. Lögreglan sá bifreiðina á ferðinni skömmu síðar en þegar þeir hugðust hafa afskipti af bifreiðinni gaf ökumaður í og reyndi að stinga lögreglu af. Ökumaðurinn ók út úr bænum en missti skömmu síðar stjórn á bifreiðinni á Svalbarðsströnd skammt frá bænum Breiðabóli. Bifreiðin fór nokkrametra út fyrir veg þar sem hann að lokum staðnæmdist. Ökumaðurinn sem var einn í bifreiðinni slapp ómeiddur og þykir mikil mildi að ekki fór verr.