Á sunnudaginn komandi 11. október kl 13-13.30 er boðið í samtal með Brák Jónsdóttur myndlistarmanni í Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum. Rætt verður um verk Brákar sem hún vann í ár sérstaklega fyrir Sigurhæðir, tilurð verkanna, hugmyndir, áferði og áhrif.
Sunnudagurinn er líka seinasti opni dagurinn á Sýningu ársins 2026 í Sigurhæðum og er opið þann dag kl 11-14.
Eftir það er opið nokkra sérvalda og sérstaklega auglýsta daga inn í veturinn og svo er auðvitað alltaf hægt að hafa samband fyrir hópa og leigu á aðstöðu fyrir fundi og hittinga á flora.akureyri@gmail.com.