Umboðsmaður barna lýsir yfir áhyggjum af þeim niðurskurði sem átt hefur sér stað og er fyrirhugaður hjá sveitarfélögum
landsins, ekki síst í leik- og grunnskólum og tómstundastarfi. Í erindi frá umboðsmanni barna til skólanefndar Akureyrar, er minnt á að
börn eru viðkvæmur þjóðfélagshópur sem á rétt á sérstakri vernd og þjónustu, eins og m.a. kemur fram í 3.
mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar.
Því vill umboðsmaður hvetja sveitarfélög til að leita annarra leiða við niðurskurð en þann sem bitnar á þjónustu
við börn og er í því sambandi bent á 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem felur í sér að það
sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir sem varða börn. Í bókun tekur skólanefnd tekur undir
áhyggjur umboðsmanns barna.