Verðmunur á milli 10-11 og Samkaup Strax er að meðaltali um 9% ef miðað er við þær vörur sem eru teknar með í könnuninni. Nettó oftast með næst lægsta verð og verðmunur á milli Bónus og Nettó er að meðaltali 6%. Í mörgum tilvikum er mikill munur á hæsta og lægsta verði eða mest 110% á Brassa appelsínusafa og 102% á Dorritos flögum. Munur á hæsta og lægsta verði er að meðaltali tæp 50%.
Verðmerkingar voru skoðaðar sérstaklega. Kannað var hvort vörur væru verðmerktar og hvort samræmi væri á milli hilluverðs og kassaverðs. Verðmerkingar voru í heildina mjög góðar og afar sjaldgæft var að verðmerkingar vantaði. Í langflestum tilfellum var sama verð á hillukanti og á kassa. Það er helst að mælieiningarverðið vanti (lítra-, kíló- eða stykkjaverð) en skylt er að upplýsa um það alls staðar þar sem við á, segir í tilkynningu frá Neytendasamtökunum. Sjá nánar á ns.is.