Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, í samstarfi við bókasöfn á Íslandi heldur Bókasafnsdag, fimmtudaginn
14. apríl nk. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Bókasöfn gegna mikilvægu
hlutverki sem miðstöð fræðslu og þekkingar, fyrir framboð á tón- og myndlistarefni, yndislestri og afþreyingu, fyrir aðstoð við
upplýsingaöflun og gagnaleitir.
Bókasöfn eru auk þess samkomuhús, menningarmiðstöðvar og góður staður til að vera á. Bókasöfn eru heilsulind hugans.
Bókasöfnin munu taka á móti viðskiptavinum sínum eins og vanalega þennan dag. Mörg þeirra verða með dagskrá eða tilbreytingu
í starfsemi sinni eins og sjá má á eftirfarandi dæmum:
- Meðal annars verður kynntur listi yfir 100 bestu íslensku bækurnar að mati þeirra sem á bókasöfnunum starfa.
- Mörg bókasöfn gefa gestum fallegt bókamerki dagsins.
- Í nokkrum söfnum verður gestum einnig boðið upp á að taka þátt í vali á bestu bókunum.
- Borgarbókasafn ætlar að bjóða þeim sem ekki eiga bókasafnsskírteini þar upp á frítt bókasafnsskírteini sem gildir
í ár, auk áhugaverðrar dagskrár í útibúum safnsins.
- Þá verða kynnt ný myndbönd sem bókasöfn hafa útbúið um starfsemina.
- Í Landsbókasafni verður metnaðarfull dagskrá þar sem m.a. verður kynnt frágangsferli bókar, sýnd verða myndbönd og stuttmyndir
og kynntir gagnagrunnarnir timarit.is / hvar.is og handrit.is
- Þá er dagurinn gleðidagur fyrir starfsmenn bókasafnanna en um morguninn býður Upplýsing til morgunfundar um ímynd þeirra sem á
bókasöfnum starfa og mun Fjalar Sigurðarson vera með framsögu þar. Almennt munu starfsmenn svo gera sér dagamun á einn eða annan hátt.