Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, fékk á dögunum afhentan fyrsta BLEIKA POKANN frá Plastprent. Markmiðið með BLEIKA POKANUM er að styðja við söluna á Bleiku slaufunni, vekja athygli á átakinu og auka árvekni um krabbamein hjá konum.
BLEIKI POKINN verður í sölu hjá Plastprent til og með 31. október og rennur allur ágóði af sölu pokans til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.