Björgúlfur hefur alla tíð aflað fyrir fiskvinnsluna á Dalvík frá því að hann kom nýr árið 1977. "Árangurinn í ár er glæsilegur ekki síst í ljósi þess að skipið var stopp í 5 vikur í sumar. Á síðasta ári var aflaverðmæti skipins 970 milljónir en það eru líklega 3 landanir eftir á árinu svo skipið fer vel yfir milljarðinn í ár. Þrátt fyrir mikinn afla hefur áhöfnin lagt sig fram um að skila úrvalshráefni fyrir vinnslu félagsins, en gæði og sölumöguleikar stýra alfarið veiðum skipsins á hverjum tíma", segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðar Samherja hf. á vef fyrirtækisins.