Bjarni Jónasson sem gegnt hefur starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri mun sinna starfinu í einn mánuð til viðbótar.
Halldór Jónsson forstjóri FSA var í námsleyfi í fyrra og átti að koma til starfa 1. febrúar. Vegna starfa Halldórs fyrir heilbrigðisráðuneytið var því frestað til 1. apríl og Bjarni skipaður forstjóri til þess tíma. Halldór sneri hins vegar ekki til starfa á þeim tímapunkti, heldur var Bjarni skipaður forstjóri til 1. júní.
Nú hefur svo verið ákveðið að Bjarni Jónasson gegni starfi forstjóra FSA út júní.