Bjarnahátíð á Siglufirði

Ragnhildur Stefánsdóttir við frummyndina af séra Bjarna/mynd Jónas Ragnarsson
Ragnhildur Stefánsdóttir við frummyndina af séra Bjarna/mynd Jónas Ragnarsson

Sunnudaginn 7. júlí kl.16:00, við lok þjóðlagahátíðar á Siglufirði, verður vígður minnisvarði um séra Bjarna Þorsteinsson tónskáld og heiðursborgara Siglufjarðar. Minnisvarðinn er framan við Siglufjarðarkirkju. Einnig verður vígt svonefnt Bjarnatorg, skreytt íslensku stuðlabergi. Myndastyttuna hefur listakonan Ragnhildur Stefánsdóttir gert. Bjarnatorgið er hannað af Fanneyju Hauksdóttur arkitekt. Þór Sigmundsson steinsmiður vann allt steinverkið.

Minnisvarðinn og Bjarnatorgið verða afhjúpuð af gefendum verkanna. Þeir eru Arnold Bjarnason, afabarn séra Bjarna, sem gefur myndastyttuna, og Siglfirðingnum Páll Samúelssyni, sem gefur efni og vinnu við torgið.

Við athöfnina leikur Sigurður Hlöðversson, formaður sóknarnefndar,  lagið Blessuð sértu sveitin mín  á trompet,  úr kirkjuturni Siglufjarðarkirkju.

 Síðar verður lagið  Ég vil elska mitt land sungið af viðstöddum. Bæði lögin eru  eftir séra Bjarna.
 Séra Vigfús Þór Árnason fyrrverandi sóknarprestur Siglfiðringa  fytur  ávarp, er fjallar  um  séra Bjarna og áhrif hans á íslenska menningu.

Séra Sigurður Ægisson sóknarprestur Siglfiðringa  blessar mannvirkin.

Meðal gesta við athöfnina verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- og þjóðmenningar ráðherra tengdasonur  Siglfirðingsins Páls Samúlessonar gefanda Bjarnatorgs  og Siglfirðingurinn  Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.

 Gifsstyttan verður afhent í Þjóðlagasetri Bjarna Þorsteinssonar  að lokinni athöfn á kirkjutröppunum.Síðan býður sóknarnefndin í kaffisamsæti.

 

Nýjast