KKA hefur útnefnd Bjarka Sigurðsson sem íþróttamann ársins 2010 hjá félaginu. Þetta er í þriðja sinn sem Bjarki hlýtur þennan titil, þrátt fyrir að vera einungis 18 ára.
Á heimasíðu KKA er farið yfir feril Bjarka síðustu ár sem er afar glæsilegur.
2006: Þetta var hans fyrsta keppnisár, þá 14 ára, og keppti hann í 85cc flokki. Hann hafnaði í 4.sæti eftir tímabilið.
2007: Næsta ár keppti hann líka í 85cc flokki og þá endaði Bjarki í 2.sæti eftir
tímabilið. Bjarki keppti með landsliðinu fyrir hönd Íslands í motocrossi í Svíþjóð.
Þetta ár hóf hann keppni í Snocross og endaði þar í 2. sæti í unglingaflokki.
2008: Bjarki hóf keppni í 125cc flokki og endaði í 4. sæti eftir tímabilið. Þetta árið keppti hann í fyrsta
skipti í Enduro og var í B-flokki. Þar endaði hann í 2.sæti og var valinn nýliði ársins í enduro. Hann varð Íslandsmeistari
í Snocrossi í unglingaflokki og var þá valinn í fyrsta skiptið Íþróttamaður ársins hjá KKA.
2009: Þetta keppnistímabil var með afbrigðum glæsilegt. Bjarki keppti í 125cc flokki í annað sinn og varð Íslandsmeistari í þeim flokki, ásamt því að verða Íslandsmeistari í Enduro-tvímenning. Hann keppti líka í Snocrossi og varð Íslandsmeistari í Sport flokki. Bjarki fór með landsliði Íslands til Svíþjóðar og tók þar þátt í heimsmeistaramóti í Snocrossi. Hann var þar einungis tveimur sætum frá því að komast í úrslit. Bjarki var valinn íþróttamaður ársins hjá KKA í 2. skiptið. Hámarki náði svo tímabilið þegar hann var útnefndur akstursíþróttamaður ársins hjá landssamtökunum MSÍ.