Apostol Apostolov, landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna í blaki hefur valið 18 leikmenn í æfingahóp vegna keppni á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein í byrjun júní í sumar. Leikmennirnir koma úr sjö félögum og eru tveir leikmenn frá KA í hópnum, þær Auður Anna Jónsdóttir og Birna Baldursdóttir.
Hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum:
| Ingibjörg Gunnarsdóttir | HK | |
| Fríða Sigurðardóttir | HK | |
| Karen Björg Gunnarsdóttir | HK | |
| Velina Apostolova | HK | |
| Birta Björnsdóttir | HK | |
| Steinunn H. Björgólfsdóttir | HK | |
| Laufey Björk Sigmundsdóttir | HK | |
| Kristín S. Þórhallsdóttir | Þróttur N | |
| Zaharina Filipova | Þróttur N | |
| Miglena Apostolova | Þróttur N | |
| Helena K. Gunnarsdóttir | Þróttur N | |
| Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir | Þróttur N | |
| Auður Anna Jónsdóttir | KA | |
| Birna Baldursdóttir | KA | |
| Fjóla Rut Svavarsdóttir | Þróttur R | |
| Hjördís Eiriksdóttir | Stjarnan | |
| Elsa Sæný Valgeirsdóttir | Holte IF | |
| Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir | UiS Volley |
Íslenska liðið kemur saman til æfinga að loknu tímabilinu hérna heima en keppnin sjálf er frá 30. maí til 4. júní.