Á fundi félagsmálaráðs Akureyrar í síðustu viku var kynnt staða biðlista eftir hjúkrunar-, dvalar-, skammtíma- og dagvistarrýmum fyrir aldraða. Aukin ásókn er í dagvistarrými og eru 17 manns á biðlista, auk þess eru 10 einstaklingar sem óska eftir aukinni þjónustu.
Í bið eftir hjúkrunarrýmum á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eru 20 einstaklingar og 11 bíða eftir dvalarrýmum. 37 einstaklingar eru á biðlista eftir skammtímadvöl. Biðlistar hafa verið að lengjast undanfarið ár.