Bandaríski framherjinn Daniel J. Howell, 25 ára, kom í vikunni til reynslu hjá KA og mun hann æfa og spila með liðinu á næstunni í Lengjubikarnum.
Howell þekkir ágætlega til í íslenska boltanum því hann spilaði með Gróttu í fyrstu deildinni í fyrra. Þar skoraði hann fimm mörk í 21 leik og eitt mark í tveimur leikjum í VISA-bikarnum, segir á vef KA.