Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi við bæinn Krossa seinni partinn í dag. Þar varð árekstur með sendibifreið og vöruflutningabifreið og voru ökumenn einir í bílunum. Voru þeir báðir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Þar var ökumaður sendibifreiðarinnar, maður á þrítugsaldri, úrskurðaður látinn. Ökumaður vöruflutningabifreiðarinnar fékk að fara heim að lokinni skoðun. Lögreglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins í samstarfi við Rannsóknarnefnd umferðarslysa. Þetta kemur fram á mbl.is.