Akureyrarbær greiddi tæpar 2,4 milljónir króna í dráttarvexti á árinu 2010. Þetta kom fram í svari
fjármálastjóra bæjarins við fyrirspurn Höllu Bjarkar Reynisdóttur bæjarfulltrúa á fundi bæjarráðs í morgun.
Á fundinum samþykkti bæjarráð að vísa ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 til síðari umræðu í
bæjarstjórn.