02. desember, 2010 - 12:38
Á fundi bæjarráðs í morgun var tekið fyrir erindi frá sendiherra Japans á Íslandi þar sem hann vonast til að
bæjarstjórinn á Akureyri gerist aðili að samtökunum Mayors for Peace. Markmið samtakanna er að útrýma kjarnorkuvopnum í heiminum fyrir
árið 2020. Ennfremur berjast samtökin fyrir mannréttindum og verndun umhverfisins í því skyni að stuðla að heimsfriði.
Sendiherrann óskar einnig eftir því að fá að setja upp sýningu á Akureyri á næsta ári á myndum sem teknar voru eftir
kjarnorkusprenginguna á Nagasaki. Bæjarráð samþykkti að bæjarstjóri verði aðili að samtökunum Mayors for Peace. Einnig býður
bæjarráð sendiráðið velkomið með ljósmyndasýninguna til Akureyrar. Ólafur Jónsson D-lista sat hjá við
afgreiðslu.