Bæjarráð samþykkti viljayfir- lýsingu um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun, viljayfirlýsingu milli Sparisjóðs Höfðhverfinga, KEA svf, Sæness ehf og Akureyrarkaupstaðar um aukningu stofnfjár í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjarráð vísaði viljayfirlýsingunni og vísaði henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista sat hjá við afgreiðslu.  

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi S-lista óskaði bókað á fundi bæjarráðs:

"Ég er andvígur því að Akureyrarbær taki þátt í að auka stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga. Bæjaryfirvöld hafa hingað til einungis lagt fjármuni til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu, starfsemi sem ekki er í samkeppni við þau fyrirtæki sem fyrir eru. Nú er vikið frá þeirri stefnu og fjármunir bæjarbúa notaðir til að efla nýtt fjármálafyrirtæki sem starfa mun í beinni samkeppni við þau sem fyrir eru. Það er grundvallarregla í opinberri stjórnsýslu að gæta jafnræðis þegar ákvarðanir eru teknar. Það tel ég að sé ekki gert með þessari ákvörðun."

Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskaði bókað:

"Stefna Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er skýr varðandi það að við teljum almennt ekki rétt að Akureyrarkaupstaður fjárfesti í samkeppnisrekstri.  Hins vegar tel ég að í ljósi núverandi aðstæðna í samfélaginu geti stofnun sparisjóðs með aðkomu Akureyrarkaupstaðar styrkt samfélagið.  Því vil ég leggja áherslu á að aðkoma Akureyrarkaupstaðar sé einungis hugsuð til skamms tíma og bæjarbúum boðið að fjárfesta í stofnfé nýs sparisjóðs hið allra fyrsta."

Petra Ósk Sigurðardóttir B-lista óskaði bókað:

"Ég tel stofnun sparisjóðs góða hugmynd en hef efasemdir um að bærinn bindi fjármuni í þetta verkefni á sama tíma og grunnþjónusta þarf að sæta niðurskurði.  Því sit ég hjá við atkvæðagreiðslu þessa."

Nýjast