Bæjarbúar og viðskiptamenn upplifi þetta sem fyrirtækið sitt

Stjórn Sparisjóðs Höfðhverfinga hefur ákveðið að auka stofnfé sjóðsins um allt að 500 milljónir króna til að undirbyggja útvíkkun á starfsemi með opnun nýs sparisjóðs á Akureyri. Þetta er gert á grundvelli viljayfirlýsingar á milli KEA, Akureyrarbæjar og Sænes um að kaupa stofnfé í fyrirhugaðri stofnfjáraukningu. Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA segir að þetta sé nokkuð djörf ákvörðun. "En það er eftirspurn eftir svona verkefni og við í KEA höfum fundið mikið fyrir því," sagði Halldór.  

"Við heyrum það á umræðunni í bæjarfélaginu að menn sakna þess að heimamenn séu ekki með forræði yfir svona mikilvægu fyrirtæki, sem þau vissulega eru í þeim samfélögum sem þau starfa. KEA kemur að þessu verkefni fyrir nokkrum árum og við höfum fylgt því ágætlega eftir og stutt við það. Við höfum um hríð talið að það sé færi fyrir svona fyrirtæki hér á þessum stað, sérstaklega eftir bankahrunið. Þetta eru öflugir aðilar sem koma að þessu, Sænes, Akureyrarbær og KEA, félagið verður opnað fyrir almenningi, þannig að bæjarbúar og viðskiptamenn upplifi þetta sem fyrirtækið sitt," sagði Halldór.

Stuðningur við atvinnuuppbyggingu

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir að það sé mjög ánægjulegt fyrir Akureyrarbæ að vera þátttakandi í þessu verkefni. "Menn þurftu ákveðinn tíma til að hugsa sig um, það er stórt og mikið mál, að taka ákvörðun um stuðning við svona verkefni. Þegar menn voru búnir að taka ákvörðun, var hún ekki svo erfið. Við lítum á þetta sem stuðning við uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu og þess vegna er þetta okkur gríðarlega mikilvægt. Hlutverk okkar með því að koma inn í þetta er að treysta böndin við íbúana, að þeir finni að hér sé bankastofnun sem þeir finna samsvörun hjá. Okkar markmið er það líka að íbúarnir hafi með þessu tækifæri til að koma inn í þetta verkefni, þetta sé ekki bara verkefni Akureyrarbæjar heldur verkefni fyrir íbúana alla," sagði Eiríkur Björn en skrifað er undir með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. "Svo á eftir sjá hver umræðan verður í sveitarfélaginu um þessa stóru og miklu ákvörðun en við erum stolt með að hafa sett nafn okkar á þennan samning."

Verður í eigu fólks á svæðinu

Jóhann Ingólfsson formaður stjórnar Sparisjóðs Höfðhverfinga sagði þetta mikilvægt skref fyrir sjóðinn, þessa gömlu stofnun, sem var stofnuð árið 1879. "Þetta hefur verið minnsti sparisjóður landsins lengi og nú fær hann þessa traustu aðila til að koma að stækkun hans. Það er gríðarlega mikilvægt í þessu fjármálaumhverfi eins og það er í dag og lítið traust á þeim stofnunum. Við þurfum ekki að vera hissa á því en Sparisjóður Höfðhverfinga er stofnun, þar sem búið er að margsnúa hverjum einasta steini á undanförnum árum til að skoða ofan í kjölinn. Ég held að það séu fáar stofnanir sem hafa farið í gegnum aðra eins og skoðun og Sparisjóður Höfðhverfinga. Tengist það bæði Fjármálaeftirlitinu og aðkomu KEA á sínum tíma. Ég þykist vita að Akureyringar muni taka þessu vel og flykkja sér um þennan sjóð, því hann verður í eigu fólks hér á svæðinu. Ég þykist jafnframt vita að Akureyrarbær og KEA muni uppskera eins og þau hafa sáð," sagði Jóhann

KEA svf. á nú 35% stofnfjár í sjóðnum og hyggst auka eign sína í tæplega 50%.  Sænes hf. sem er hlutafélag í eigu Grýtubakkahrepps mun tvöfalda eignarhlut sinn eða í 20% en fyrir liggur einnig að Akureyrarbær mun kaupa stofnfé í þessari aukningu um allt að 20%. Sjá nánar frétt hér neðar á síðunni.

Nýjast