Atli til KR?

Atli Sigurjónsson í leik með Þór gegn KR í Pepsi-deildinni í sumar.
Atli Sigurjónsson í leik með Þór gegn KR í Pepsi-deildinni í sumar.

Svo gæti farið að Atli Sigurjónsson, miðjumaður Þórs, gangi í raðir Íslands-og bikarmeistara KR. Atli hefur æft með KR-ingum að undanförnu og leikið æfingaleiki með liðinu. Magnús Ingi Eggertsson, formaður leikmannaráðs karla hjá Þór, segir í samtali við Vikudag að hann búist við tilboði frá KR í leikmanninn í þessari viku. „Þeir hafa mjög mikinn áhuga á honum og þetta mun allt skýrast í lok vikunnar,” sagði Magnús.

Nýjast