Atkvæðagreiðsla um verkfalls- boðun hjá Becromal

Í gær var haldinn fundur í samninganefnd Einingar-Iðju. Þar fór Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, yfir það sem er að gerast í kjarasamningum og eins það sem ekki er að gerast, í góðum fyrirlestri um stöðuna sem uppi er í samningamálum. Einnig var samþykkt samhljóða að fram fari atkvæðagreiðsla um verfallsboðun meðal starfsmanna í vaktavinnu hjá Becromal, en á fundinum var tekin fyrir tillaga um slíkt frá samninganefnd félagsins við Becromal.  

Síðastliðinn föstudag slitnaði upp úr viðræðum við Becromal en þá var búið að halda átta fundi í deilunni hjá ríkissáttasemjara. Áður en deilan fór þangað var búið að halda fjölmarga árangurslausa fundi heima í héraði. Í dag fara fram kynningarfundir með starfsmönnum Becromal um stöðuna og á miðvikudag og fimmtudag fer fram kosning um verkfallsboðun meðal starfsmanna í vaktavinnu hjá Becromal, segir á vef Einingar-Iðju.

Nýjast