Þrjár dauðar aspir hafa vakið athygli vegfarenda við Lækjargil í Innbænum á Akureyri. Inga Vala Birgisdóttir, sem býr þar rétt hjá, furðar sig á aðgerðarleysi bæjarins og ákvað að hengja rusl á aspirnar til að ná augum starfsmanna Akureyrarbæjar. Ég labba þarna framhjá reglulega og ákvað um daginn að gera aspirnar líflegri svo það yrði kannski tekið eftir þeim. Þetta er elsta gata bæjarins en það er lítið sem ekkert hugsað um hana. Á sínum tíma var algjör nauðsyn að rífa niður hesthúsin sem stóðu við götuna þar sem þau sæmdu ekki fegurðarkröfum bæjarins."
"Núna standa þar þrjár dauðar aspir sem eru búnar að heyja sitt dauðastríð í nokkur ár eða síðan brekkan fyrir neðan orlofshúsin var hreinsuð. Þessar aspir gleymdust og þeim var skellt hinum megin við götuna, segir Inga.