Árleg Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri

Myndlistaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Myndlistaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Hin árlega Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð fimmtudaginn 17. maí í húsnæði skólans Kaupvangsstræti 16. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Auk þess gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur í frjálsri myndlist og grafískri hönnun hafa verið að fást við á þessu skólaári.  Alls stunduðu fimmtíu og átta nemendur nám í dagdeildum skólans og af þeim munu tuttugu og sex brautskrást frá skólanum að þessu sinni. Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barnanámskeiðum á vorönn. Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri sýningardagana. Opnunartími kl. 13 til 17 log lýkur sýningunn sunnudaginn 20. maí, segir í fréttatilkynningu. 

 

 

Nýjast