Ari Trausti lauk undirskriftasöfnun með ferð til Grímseyjar

Ari Trausti Guðmundsson á leið Grímseyjar.
Ari Trausti Guðmundsson á leið Grímseyjar.

Ari Trausti Guðmundsson hefur lokið undirskriftarsöfnun vegna meðmæla með framboði sínu til embættis forseta Íslands. Það var gert í ferð til Norðurlands dagana 11. og 12. maí. Með síðustu undirskriftanna voru þær sem fengust á stuttum en skemmtilegum fundi að kvöldi föstudagsins 11. maí í Grímsey. Flogið var til eyjarinnar á lítilli og nýuppgerðri tveggja hreyfla Piper Apache-vél og skundað í félagsheimilið þar sem heitt kaffi beið á könnu og hressir Grímseyingar tóku á móti gestunum. Skil á undirskriftalistum fer fram í öllum kjördæmum landsins á tímabilinu 15. til 22. maí. en framboðsfrestur rennur út 25. maí, segir í fréttatilkynningu.

 

 

Nýjast