Samherjar eiga ekki að berjast, heldur eiga þeir að sættast, segir Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra um átökin í Framsóknarflokknum í Norðausturkjördæmi um framboðsmál. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður og Höskuldur Þórhallsson þingmaður eru báðir frábærir vinir mínir. Við þurfum Framsóknarflokkinn til áhrifa í þjóðfélaginu og báðir hafa þessir vinir mínir bent á raunhæfar leiðir til lausnar efnahagsvandanum í landinu.
Guðni var stddur á Akureyri í vikunni. Hann segir að deilurnar í flokknum séu líklega skaðlegar.
Það er alltaf hættulegt þegar sterkir menn taka að glíma. Það þekki ég úr mínu kjördæmi. Þess vegna er svo mikilvægt að ljúka þessu máli sem fyrst og ég hef trú á því að svo verði gert innan tíðar.
karleskil@vikudagur.is