Alls eru 14 börn, tveggja ára og eldri, á biðlista hjá Akureyrarbæ nú í lok júní, sem bíða eftir svari um leikskólapláss. Gera má ráð fyrir að bæta þurfi við 1,0 stöðugildi til að hægt verði að anna þeirri eftirspurn. Kostnaðurinn nemur um 1.5 millj. frá 1. sept. til loka ársins eða um 4,5 millj. á ársgrundvelli. Ennþá eru að berast umsóknir um leikskólapláss svo hugsanlega má búast við að fleiri börn bætist í hópinn þegar fram líða stundir.
Þegar er búið að innrita 292 börn sem verða 2 ára á þessu ári (fædd 2010) en heildarfjöldi þessara barna sem eru skráð í bænum eru um 328 börn þanni gað ríflega 30 börn hafa ekki sótt um leikskólapláss.
Óskað hefur veftir því við bæjaryfirvöld að fá heimild til að ráða í 1,0 stöðugildi til að anna eftirspurn eftir leikskólaplássum fyrir tveggja ára og eldri.
Skólanefnd samþykkti á fundi sínum í vikunni að óska eftir því við bæjarráð að fá aukafjárveitingu að upphæð 1,5 millj. til að ráða í viðbótastöðu starfsmanns í leikskóla.